Um fyrirtækið

Fyrirtækið Goddi hefur boðið upp á flestar tegundir af áklæði, leðri og leðurlíki í heild- og smásölu í um fjóra áratugi. Í seinni tíð hafa aðrar og óskyldar tegundir verið á boðstólum svo sem saunavörur, infra rauðir hitaklefar, heitir pottar, kerrur og bátar svo fátt eitt sé nefnt. Hægt er panta hjá okkur af lager eða í sérpöntunum.

Friðgeir S. Haraldsson eigandi Godda er ættaður frá Goddastöðum og þess vegna ber fyrirtækið þetta nafn.

Þórður Goddi hét maður er bjó í Laxárdal fyrir norðan á. Sá bær heitir síðan á Goddastöðum, en þannig hljóðar upphaf XI kafla í Laxdælu og mun nafnið Goddi þýða goðorðsmaður, en þar sleit bernskuárunum Ólafur Pá Höskuldsson. Bærinn hefur verið í byggð síðan og einn fárra á landinu sem fengið hafa ástandsyrði „nú er stand á Goddastöðum.“

Heyrðu í okkur


Opið


Mánudaga – Föstudaga 10:00 – 16:00

Laugardaga Lokað

Sunnudaga Lokað


Upplýsingar


Heimilisfang Auðbrekka 19, 200 Kópavogi

Sími 544-5550 / 822-4150

Netfang goddi@goddi.is